Ég og Steini ákváðum skyndilega að fara í bíó áðan og skelltum okkur á Tropic Thunder sem by the way átti að vera geggjað góð en jú ókey ég náði að hlægja smá en það skiptir ekki máli því að á meðan við sátum og reyndum að lifa okkur inní myndina þá gossaði upp allsvakaleg fýla, í fyrstu var það munntóbakið hans Steina en svo stuttu seinna fann ég lykt sem ekki er hægt að lýsa í mannlegum orðum hún var svo vond... prumpið hans Steina er hátíð miðað við þessa lykt sjitturinn... Við bæði með nefið uppí loft að reyna átta okkur á hvaðan í ósköpunum þessi lykt gæti komið og komumst að þeirri niðurstöðu að stelpan sem sat tveimur sætaröðum frá Steina var nýbúin að klæða sig úr skónum og flaggaði þarna á sér berum tánum á næsta stólbaki og Guð minn góður hvað ég er þakklát að eiga ekki við þetta vandamál að stríða en halló ég hef fundið táfýlu en þetta var einhver stökkbreyting á þeim viðbjóði....
Ég biðst forláts ef þið eigið við þetta vandamál að stríða en ég get rétt ímyndað mér að þið haldið þá tánum ykkar í sokkum og skóm á almannafæri ekki að það skipti samt neinu máli ég varð bara að deila þessu með ykkur þar sem þetta var frekar fyndin, skemmtileg og algjörlega ólýsanleg upplifun á undarlegustu lykt sem mitt þefskyn hefur komið nálægt og vona ég að það komi ekki nálægt henni aftur í komandi framtíð......
Takk fyrir mig og Góða nótt
Monday, September 8, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Hahaha þetta er t.d ein af ástæðunum fyrir því að ég er not too hot fyrir bíó...Ég verð samt að viðurkenna að ég á svipaða sögu Þegar ég fór að sjá American Pie í bíó. Þá varð mér svo svakalega heitt á fótunum að ég ákvað að fara úr skónum. Í hlénu þá hallar vinur minn sér að mér og segir: "veistu að það er alveg svakalega táfýla af þér" og ég held ég hafi sjaldan orðið rauðari í framan og sökk ofan i stólinn. Helvítis fíflið játaði svo eftir myndina að hafa bara verið að ljúga að mér þar sem að hann sá skónna mína liggja á gólfinu þegar ljósin kviknuðu í hlénu og að hann hafi skemmt sér betur yfir svipnum á mér en myndinni;) (sem minnir mig á, ég á alltaf eftir að hefna mín á honum)
Knús skvís, mundu svo bara að fara með klemmu næst í bíó eða getur andað ofan í popppokann;)
Hahahaha.... já sjitt þetta var alveg aaagaleg lykt fokk. Í nokkra daga á eftir var ég alltaf að upplifa þessa lykt aftur og hélt að þetta væri af mér... en sem betur fer ekki. Datt í hug að ég hefði kannski smitast.
Kv. Steini.
Post a Comment